Lilja Marteins
Meira frelsi. Meiri sveigjanleika. Meiri áhrif.
Ekki vegna þess að þær vilji vinna minna. Heldur vegna þess að þær vilja byggja eitthvað sem passar betur við lífið sem þær vilja lifa.
Flestir líta á lífið sitt og reksturinn sem tvo aðskilda hluti.
Ég geri það ekki.
Konan sem byggir fyrirtækið og fyrirtækið sem hún byggir hafa áhrif hvort á annað á hverjum einasta degi. Ákvarðanirnar sem þú tekur. Það sem þú þorir. Það sem þú forðast. Sýnin sem þú hefur fyrir framtíðina. Allt endurspeglast í rekstrinum.
Þess vegna byrjar vinnan mín aldrei á markaðssetningu, samfélagsmiðlum eða nýju kerfi.
Hún byrjar á greiningu. Að sjá það sem er raunverulega að gerast. Ekki bara í rekstrinum. Heldur í heildarmyndinni.
Þetta er eitt kerfi.
„Að skapa fyrirtæki sem styður lífið.
Ekki líf sem snýst um fyrirtækið."
Ég hef aldrei haft mikinn áhuga á því að hjálpa fólki að passa betur inn í ramma sem er orðinn of lítill.
Mér finnst miklu áhugaverðara að hjálpa því að sjá skýrar. Sjá hvað er raunverulega í vegi. Og sjá hvað verður mögulegt þegar við hættum að reyna að fylgja leið sem passar okkur ekki.
Mig skortir nánast orð til að lýsa upplifuninni minni af því að vinna með Lilju.
Það sem gerir samstarfið sérstaklega dýrmætt er sköpunarkrafturinn hennar, útsjónarsemin og hvað hún er skemmtileg í samskiptum. Hún finnur lausnir, lyftir hugmyndum upp á hærra plan og skilar alltaf fallegri og vandaðri vinnu. Ég treysti henni fullkomlega og mæli eindregið með henni.
Dögg Stefáns
Lífsþjálfi og stofnandi Sjálfsræktarakademíunnar
Ég kynntist Lilju fyrir rúmu ári síðan og hún hefur hjálpað mér alveg ótrúlega mikið við að koma mínum hugmyndum í farveg.
Hún hefur hjálpað mér að umbreyta fyrirtækinu mínu og koma mér hægt og rólega þangað sem ég vil vera. Það hefur verið frábært að vinna með Lilju og ég er ótrúlega þakklát fyrir hennar aðstoð.
Hugrún Linda
Streituþjálfun og ráðgjöf
Það hefur verið alveg ómetanlegt að hafa Lilju til að aðstoða mig við daglegan rekstur hjá mér.
Áður en hún kom til sögunnar var ég að reyna að gera allt sjálf. Lilja var mjög fljót að setja sig inn í verkferla og kerfin sem ég er að nota, hjálpaði mér að setja upp áætlanir og standa við þær. Verkefnin eru leyst hratt og örugglega. Ég mæli 100% með Lilju.
Sif Traustadóttir
Stofnandi Höfundaskólans
Stundum gerist sú vinna í einu samtali.
Stundum í gegnum samfélag.
Stundum á retreati undir spænskri sól.
Stundum með nýjum verkfærum sem gera mögulegt að skapa meira með minni fyrirhöfn.
Formið breytist. Vinnan er alltaf sú sama.
Að sjá skýrar. Byggja af meiri ásetningi.
Ef þú ert að leita að þessum skýrleika er Norðurstjarnan fyrsta skrefið.
90 mínútur. Skýr greining. Vegvísir sem sýnir þér hvað er raunverulega að halda aftur af þér og hvað þarf að byggja næst.