Lilja Marteins. Líf og rekstur .
Lilja Marteins

Lilja Marteins

Flestar konur sem ég þekki
vilja sama hlutinn.

Meira frelsi. Meiri sveigjanleika. Meiri áhrif.

Ekki vegna þess að þær vilji vinna minna. Heldur vegna þess að þær vilja byggja eitthvað sem passar betur við lífið sem þær vilja lifa.

Kanna Norðurstjörnuna
Líf og rekstur

Flestir líta á lífið sitt og reksturinn sem tvo aðskilda hluti.

Ég geri það ekki.

Konan sem byggir fyrirtækið og fyrirtækið sem hún byggir hafa áhrif hvort á annað á hverjum einasta degi. Ákvarðanirnar sem þú tekur. Það sem þú þorir. Það sem þú forðast. Sýnin sem þú hefur fyrir framtíðina. Allt endurspeglast í rekstrinum.

Þess vegna byrjar vinnan mín aldrei á markaðssetningu, samfélagsmiðlum eða nýju kerfi.

Hún byrjar á greiningu. Að sjá það sem er raunverulega að gerast. Ekki bara í rekstrinum. Heldur í heildarmyndinni.

Þetta er eitt kerfi.

„Að skapa fyrirtæki sem styður lífið.
Ekki líf sem snýst um fyrirtækið."
Lilja Marteins
Um mig

Ég sé yfirleitt fljótt hvað hangir ekki saman.

Ég hef eytt stórum hluta starfsævinnar á bak við tjöldin í fyrirtækjum annarra kvenna. Þar hef ég byggt, einfaldað og greint hvað er raunverulega að tefja vöxtinn.

Reynslan hefur kennt mér að vandamálið er sjaldnast skortur á hugmyndum. Oftar vantar skýra stefnu, rétta röð og fyrirtæki sem tekur mið af lífinu sem á að bera það.

Þess vegna horfi ég alltaf á heildarmyndina. Síðan finnum við hvað skiptir máli núna.

Vitnisburðir

Mig skortir nánast orð til að lýsa upplifuninni minni af því að vinna með Lilju.

Það sem gerir samstarfið sérstaklega dýrmætt er sköpunarkrafturinn hennar, útsjónarsemin og hvað hún er skemmtileg í samskiptum. Hún finnur lausnir, lyftir hugmyndum upp á hærra plan og skilar alltaf fallegri og vandaðri vinnu. Ég treysti henni fullkomlega og mæli eindregið með henni.

Dögg Stefáns

Lífsþjálfi og stofnandi Sjálfsræktarakademíunnar

Ég kynntist Lilju fyrir rúmu ári síðan og hún hefur hjálpað mér alveg ótrúlega mikið við að koma mínum hugmyndum í farveg.

Hún hefur hjálpað mér að umbreyta fyrirtækinu mínu og koma mér hægt og rólega þangað sem ég vil vera. Það hefur verið frábært að vinna með Lilju og ég er ótrúlega þakklát fyrir hennar aðstoð.

Hugrún Linda

Streituþjálfun og ráðgjöf

Það hefur verið alveg ómetanlegt að hafa Lilju til að aðstoða mig við daglegan rekstur hjá mér.

Áður en hún kom til sögunnar var ég að reyna að gera allt sjálf. Lilja var mjög fljót að setja sig inn í verkferla og kerfin sem ég er að nota, hjálpaði mér að setja upp áætlanir og standa við þær. Verkefnin eru leyst hratt og örugglega. Ég mæli 100% með Lilju.

Sif Traustadóttir

Stofnandi Höfundaskólans

Leiðir til að vinna saman

Stundum gerist sú vinna í einu samtali.

Stundum í gegnum samfélag.

Stundum á retreati undir spænskri sól.

Stundum með nýjum verkfærum sem gera mögulegt að skapa meira með minni fyrirhöfn.

Formið breytist. Vinnan er alltaf sú sama.
Að sjá skýrar. Byggja af meiri ásetningi.

Ef þú ert að leita að þessum skýrleika er Norðurstjarnan fyrsta skrefið.

90 mínútur. Skýr greining. Vegvísir sem sýnir þér hvað er raunverulega að halda aftur af þér og hvað þarf að byggja næst.

90 mínútur Skýr greining Vegvísir
Kanna Norðurstjörnuna