MSc í verkefnastjórnun
Ég horfi aldrei bara á fyrirtækið.
Oftar er konan með of margar hugmyndir, of mörg verkefni og of mikla ábyrgð. Hún er að reyna að taka stórar ákvarðanir á meðan hún heldur utan um viðskiptavini, heimili, fjölskyldu, fjármál og allt hitt sem passar illa inn í snyrtilega viðskiptaáætlun.
Líf og rekstur eru ekki tvö aðskilin verkefni. Ef stefnan tekur ekki mið af manneskjunni sem á að framkvæma hana, tímanum hennar, orkunni og raunveruleikanum, þá heldur hún ekki.
Ég þekki það líka úr eigin lífi.
Ég hef byggt upp vinnu yfir landamæri, búið í ólíkum löndum, alið upp fjölskyldu og þurft oftar en einu sinni að endurmeta hvernig ég vil vinna og lifa.
Í dag bý ég á Suður-Spáni og vinn með konum sem eru að byggja eitthvað sem skiptir þær máli, en vilja ekki fórna sjálfum sér í leiðinni.