Promptbanki fyrir online business · Lilja Marteins
@ Lilja Marteins.
Fá promptbankann
Lilja Marteins

Ókeypis promptbanki fyrir online business

Fáðu skarpari svör úr gervigreind

Gervigreindin er sjaldnast vandamálið. Það sem þú gefur henni ræður því hversu gagnlegt svarið verður.

Fá promptbankann

Ég hef eytt hundruðum klukkustunda í að læra að vinna með gervigreind. Ekki bara til að spara tíma. Heldur til að fá skýrari greiningu, betri ákvarðanir og svör sem hægt er að nota í raunverulegum business.

Óljós spurning gefur yfirleitt óljóst svar. Góð spurning neyðir gervigreindina til að hugsa skýrar, greina betur og sýna þér það sem þú ert mögulega of nálægt til að sjá sjálf.


Hvað er í bankanum

Fjórtán prompt. Hvert þeirra greinir eitthvað ákveðið.

Promptbankinn er byggður á reynslu minni af því að greina, byggja og vinna með nærri hundrað businessa.

Þetta er ekki safn af almennum skipunum sem eiga að láta gervigreindina „gera eitthvað betra“. Hvert prompt er sjálfstætt greiningartæki.

Þau hjálpa þér meðal annars að:

  • finna flöskuhálsinn sem heldur mest aftur af þér
  • sjá blinda blettinn sem þú ert of nálægt til að taka eftir
  • reikna hvort tekjumarkmiðið þitt gangi upp
  • greina hvort tilboðið, verðið og skilaboðin segi sömu sögu
  • sjá hvort efnið þitt leiði fólk nær því að vinna með þér
  • greina hvað þú átt að gera næstu 90 daga og hvað þú þarft að sleppa

Promptin eru skrifuð til að virka bæði í ChatGPT og Claude. Þau segja gervigreindinni að aðgreina staðreyndir, ályktanir og það sem hún getur ekki vitað.

Þau eiga ekki að gefa þér fallegt svar. Þau eiga að gefa þér gagnlegt svar.


Lilja Marteins Norðurstjarnan